Lesa frétt
4.9.2009

Smart Workflow Software

Í daglegum rekstri netkerfa þarf oft að breyta aðgangi að eldveggjum. Slíkar breytingar geta haft slæmar afleiðingar í för með sér ef ekki er rétt farið að, eins og t.d. aukinn niðritíma, aukna hættu á árásum eða brot á hefðbundum öryggisstöðlum fyrirtækisins. Flest fyrirtæki hafa netkerfi sem hafa eldvegg sem ver kerfið fyrir árásum, hinsvegar er oft þörf á að breyta stillingum til að mæta breytingum ýmist vegna utanaðkomandi aðstæðna eða breytts skipulags netkerfisins.

Með Smart Workflow er yfirsýn yfir breytingar einfölduð, hægt er að hafa breyta miðlægt stillingum allra eldveggja og rekja fyrri breytingar. Markmið Smart Workflow er bæði að lágmarka þann tíma sem fer í breytingar á eldveggjum sem og þá vinnu sem felst í því að tryggja réttar stillingar allstaðar í netkerfinu.

Sjá upplýsingar um Smart Workflow á ensku HÉR.
<<Til baka