23.5.2011
TAS gerir ráðstafanir vegn eldgoss í Grímsvötnum
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að eldgos er hafið í Grímsvötnum með tilehyrandi öskufalli, í fyrra þegar Eyjafjallajökull gaus setti TAS sér markmið um hvernig ætti að bregðast við viðlíka atburðum. Í kjölfarið leit dagsins ljós neyðaráætlun vegna náttúruhamfara og hefur hún nú verið sett í framkvæmd.
Sú áætlun sem nú er í gildi felur í sér að sett er sólarhrings vakt á tengipunktum okkar bæði í Reykjavík og á norðurlandi vegna hugsanlegs öskufalls. Í fyrra var farið yfir allar þéttingar á hurðum og flóttaleiðum úr húsnæði félagsins þar sem tengipunktar eru til staðar og gerð áætlun um eftirlit með loftræstingu. Nú er sólarhrings vakt á tengipunktum félagsins og fylgst með loftræstingu á klukkustundarfresti og skipt um síur eftir þörfum.
Þegar eldgosið hófst var tveimur fulltrúum TAS gert viðvart sem starfa á suður og suð-austurlandi. Báðir þessir aðilar hafa heimild til að vera inn á gossvæðinu og veita þá þjónsutu sem þarf meðan á gosinu stendur. Einnig er starfsmaður til taks með skömmum fyrirvara í Reykjavík ef einhver forfallast fyrir austan. Viðbúið er þó að þjónusta skerðist vegna hamfaranna en TAS gerir sitt besta til að halda uppi hefðbundinni þjónustu á svæðinu eins og verið hefur.
<<Til baka