Gögn í öruggri vörslu
TAS býður upp á fjölþættar lausnir í afritun gagna, sérsniðnar að þörfum hvers viðskiptavinar. Algengasta lausnin er hefðbundin afritunartaka gagna á hverri nóttu en einnig getur verið um að ræða afritunartöku bókhaldsgagna einu sinni á ári.
Dæmi um hýsta afritun:
Dæmi I
- Heildarafrit 1. og 3. mánudag hvers mánaðar
- Afrit af gagnabreytingum hvern virkan dag
- Ekki er tekið afrit um helgar
Aðgengi að gögnum:
Gögn eru aðgengileg í 14 daga, en sé gögnum eytt og þau uppgötvast ekki fyrir en á 15. degi eða seinna eru þau glötuð.
Hægt er að nálgast allar útgáfur af sömu gögnum 14 daga aftur í tímann.
Viðskiptavinur borgar fyrir meðaltal hýstra gagna yfir hvern mánuð.
Dæmi II
- Heildarafrit 1. hvers mánaðar, eða næsta virka dag á eftir
- Breytingarafrit tekið næstu 29 daga þar á eftir
- Tekið er afrit bæði á Laugardögum og Sunnudögum
- Heildarafrit geymt í 12 mánuði
- Breytingarafrit geymt í 30 daga
Aðgengi að gögnum:
Með þessu móti eru gögn allra mánaða eins og þau eru í byrjun hvers mánaðar aðgengileg eitt ár aftur í tímann.
Allar útgáfur gagna eru aðgengilegar mánuð aftur í tímann, en síðasta útgáfa hvers mánaðar aðgengileg næstu 12 mánuði þar á eftir.
Fáðu ráðgjöf
Söludeild TAS veitir faglega ráðgjöf um uppsetningu á afritunarlausnum.