
Hýstur tölvupóstur
Tölvupósturinn er ómissandi hverjum vinnandi manni. Tölvupóstlausn TAS byggist á Exchange netþjóni Microsoft. Með hýstum tölvupósti geta viðskiptavinir verið vissir um að tölvupóstur skili sér bæði til og frá fyrirtækinu án vandkvæða. Afritunartaka er tekin af póstgrunninum á hverri nóttu og umgjörð kerfisrýmisins sem hýsir póstþjónanna er eins og best verður á kosið.
Exchange lausn Microsoft býður upp á óendanlega möguleika sem hægt er að sníða eftir þörfum viðskiptavinarins. Hægt er að skala stærð tölvupósthólfsins, virkni í síma og önnur jaðartæki, áframsendingar og vefaðgengi.
Allur tölvupóstur er vírusleitaður og ruslpóstur er síaður frá áður en póstinum er beint til viðtakanda.