Hýstu þinn eigin vélbúnað
Með hýsingu vélbúnaðar leggur félagið til fullkomið kerfisrými þar sem alls öryggs er gætt skv. ISO27001 staðlinum. Oftast leigir félagið vélbúnað til viðskiptavinar gegn föstu mánaðarlegu gjaldi, innifalið er þá gagnatenging, hýsingarrými og vakt allan sólarhringinn.
Einnig býður félagið upp á að viðskiptavinir geti hýst sinn eigin vélbúnað í kerifsrými félagsins. Tölvubúnaður er þá afhentur tæknimanni til tengingar, eftir það er ábyrgð á rekstri búnaðarins í höndum eiganda hans. TAS veitir þó ekki aðgang að kerfisrými félagsins öðrum en starfsmönnum þess. Þjónusta við vélbúnaðinn sem ekki er hægt að leysa með fjartengingum skal þá vera unnin af tæknimanni TAS.