Rekstrarlegt hagræði
Stærsti hluti af rekstri TAS er þjónusta við tölvukerfi viðskiptavina. Með gerð þjónustusamninga tryggir viðskiptavinur sér hraða og skilvirka þjónustu á fyrirfram ákveðnu verði. Þjónustusamningur er lagaður að þörfum viðskiptavina hverju sinni, hann getur innifalið m.a.:
- Fasta viðveru tæknimanna á ákveðnum tíma.
- Eftirlit með tölvubúnaði utan hefðbundins vinnutíma.
- Aðgangur að þjónustuborði allan sólarhringinn.
- Umsjón með ákveðnum kerfum s.s. gagnagrunnum eða vírusvörnum.
Með gerð þjónustusamnings geta viðskiptavinir litið á sérfræðinga TAS sem sína eigin tölvudeild. Markmið félagsins er að veita viðskiptavinum fljóta og persónulega þjónustu á þeim tíma sem hentar þeim. Auk þess getur þjónustusamningur verið stuðningur við tölvudeildir fyrirtækja þegar þekking þeirra þrýtur eða sem hluti af hýsingarlausnum TAS, allt eftir þörfum hvers og eins.
Bestu kjör hverju sinni
Viðskiptavinir njóta margvíslegs ávinnings af því að vera með þjónustusamning í gildi. Má þar nefna 15% afslátt af allri útseldri vinnu frá verðskrá auk þess sem vörusala er á bestu verðum til þeirra sem hafa þjónustusamning.
Einnig er algengt að TAS komi að tímabundnum verkefnum hjá viðskiptavinum sem eru með þjónustusamning eins og t.d. uppsetningu nýrra netþjóna, ráðgjöf við val á netbúnaði, vinnustöðvum og öðrum jaðartækjum sem og hverskyns önnur tilfallandi ráðgjöf. Þjónustusamningur tryggir bestu fáanlegu verð bæði í búnað og útselda vinnu við slík verkefni, auk ákveðins forgangs að sérfræðingum.