Afnot af vélbúnaði

Gagnaöryggi

Viðskiptavinum TAS gefst kostur á að leigja vélbúnað gegn mánaðarlegum greiðslum. Með því móti geta viðskiptavinir tryggt sér gæði og áreiðanleika án þess að þurfa að fjárfesta í dýrum tæknibúnaði. Þarfir fyrirtækja eru misjafnar og getur TAS mætt öllum kröfum viðskiptavina.

Regluleg afrit og öflugt öryggiskerfi

Tekið er daglega afrit af öllum gögnum í kerfisrými sem tryggir áreiðanleika gagna, auk þess er til staðar varaaflstöð sem tryggir rekstraröryggi þó rafmagn fari. Kerfisrýmið er vaktað mannaðri vakt allan sólahringinn, alla daga vikunnar allt árið um kring. Í rýminu eru reyk-, vatns-, og brunaskynjarar auk sjálfvirks slökkvibúnaðar.

Hraði og áreiðanleiki

Uppbygging vélbúnaðar í kerfisrými miðast ætíð út frá því að fá sem mestan hraða í vinnslu án þess að það komi niður á áreiðanleika og uppitíma kerfa. Því eru flestar starfrænar einingar tvö-, og þrefaldar eftir atvikum: Margfaldar diskastæður minnka líkur á gagnatapi, margir örgjörvar minnka svartíma gagna, auk þess miða speglun og samstykkjun diska að því að búa eins örugglega um gögn og nokkur kostur er.