Fjartenging

Notendaþjónusta yfir netið

Oft er fyrsta snerting viðskiptavina við TAS í gegnum innhringimiðstöðina. Miðstöðin sinnir notendaþjónustu með fjartengingum yfir netið til tölvu viðskiptavinarins. Einnig eru öll verk skráð í miðlægan gagnagrunn af miðstöðinni þaðan er þeim forgangsraðað og síðan útdeilt til viðeigandi tæknimanna ef miðstöðin getur ekki leyst úr þeim. Nákvæm skráning gagna tryggir rétta úrlausn þeirra og úrlausnartími verður styttri.

Einfaldasta mál í heimi:

  • 1: Þú hringir í þjónustuverið í síma: 5162500, og slærð inn númer til sem starfsmaður gefur viðskiptavini upp til að tengjast þjónustunni.
  • 2: Samþykkja þarf athugasemdir sem upp kunna að koma með því að ýta á "Yes"
  • 3: Samþykkja þarf uppsetningu hugbúnaðar sé tölvan í fyrsta skipti að nota þjónustuna. Eftir uppsetningu hans hefur starfsmaður TAS aðgang að tölvunni þinni.
  • 4: Til að slíta sambandi er hægt að smella á "disconnect" takkann hvenær sem er. Athugið að oft er fjartenging fyrsta skrefið í átt að lausn vandamála.

Takist starfsmanni ekki að leysa vandamál í gegnum fjartengingu er ekkert gjald tekið fyrir hana. Þess í stað er tæknimaður sendur á staðinn eða gripið verður til annara ráðstafana.