Tækniþjónusta

Þjónustumiðja / Innhringimiðstöð 

Oft getur farið mikill tími í lagfæringar á tölvutengdum vandamálum. TAS býður viðskiptavinum sínum vandaða notendaþjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Oft getur verið betra að láta sérfræðinga leysa úr vandamálum sem upp kunna að koma í stað þess að starfsmenn annist slík störf með tilheyrandi vinnutapi og tekjumissi.

Fyrsta snerting viðskiptavina við TAS í gegnum innhringimiðstöðina. Miðstöðin sinnir notendaþjónustu með fjartengingum yfir netið til tölvu viðskiptavinarins. Einnig eru öll verk skráð í miðlægan gagnagrunn af miðstöðinni þaðan er þeim forgangsraðað og síðan útdeilt til viðeigandi sérfræðinga ef miðstöðin getur ekki leyst úr þeim. Nákvæm skráning gagna tryggir rétta úrlausn þeirra og úrlausnartími verður styttri.

Staðbundin þjónusta tæknimanna

Kjósi fyrirtæki að hafa til taks tæknimann á staðnum getur þjónustusamningur við TAS komið til móts við þær kröfur. Hægt er að fastsetja viðveru ákveðinna sérfræðinga á ákveðnum tíma dags, skipuleggja reglulegar heimsóknir eða setja upp verkáætlanir vegna eftirlits og fyrirsjáanlegs viðhalds.

Eftirlit og bakvaktir

TAS heldur úti bakvöktum allan sólahringinn, alla daga vikunnar, allt árið um kring. Bakvaktir og útköll geta verið hluti þjónustusamnings en einnig sinnir TAS öllum útköllum sem til félagsins berast.