Þjónustusamningar

Einn reikningur - fast mánaðargjald

Stæðsti hluti af rekstri TAS er þjónusta við tölvukerfi viðskiptavina. Með gerð þjónustusamninga tryggir viðskiptavinur sér hraða og skilvirka þjónustu á fyrirfram ákveðnu verði. Þjónustusamningur er lagaður að þörfum fyrirtækja hverju sinni, hann getur innifalið m.a.:

  • Föst viðvera tæknimanna á ákveðnum tíma.
  • Eftirlit með tölvubúnaði utan hefðbundins vinnutíma.
  • Aðgangur að þjónustuborði allan sólarhringinn.
  • Umsjón með ákveðnum kerfum s.s. gagnagrunnum eða vírusvörnum.
Umfang þjónustusamningsins er metið með hliðsjón af fjölda útstöðva og netþjóna og þeim verkefnum sem samningnum er ætlað að sinna. 

Aukið öryggi - rekstrarlegt hagræði

Markmið þjónustusamninga er m.a. að veita viðskiptavinum aðgang að sérþekkingu á öllum nauðsynlegum sviðum. Oft getur verið erfitt fyrir fyrirtæki að byggja upp næga sérþekkingu með rekstri tölvudeilda og því leysir þjónustusamningur tölvudeildir af hólmi, annaðhvort algerlega eða þegar sérþekking deildarinnar þrýtur. TAS hefur bæði unnið með tölvudeildum fyrirtækja að verkefnum sem krefjast sérþekkingar sem og séð um altækan rekstur.

Vakt alla daga vikunnar allt árið um kring 

Rekstrarþjónusta TAS byggir á 10 ára reynslu starfsmanna sinna. Reynsla þeirra í rekstri flókinna kerfa er mjög mikil, sérstaða TAS felst í sérhæfingu í rekstri slíkra kerfa. Rekstrarþjónusta þarf ekki að vera bundin við landamæri heldur gefur hún möguleika á að því að vaxa með fyrirtækjum sem hafa starfsstöðvar erlendis. TAS veitir sólarhringsvakt í rekstrarþjónustu og að sama skapi hefur félagið eftirlit með þeim tölvukerfum sem hýst eru í kerfisrými fyrirtækisins. Með því að gera þjónustusamning mátt þú líta á sérfræðinga TAS sem þína tölvudeild.