Hámarks uppitími tölvukerfa
TAS býður upp á vöktun með tölvukerfum viðskiptavina sinna í gegnum fjartengingar allan sólarhringinn. Markmið vöktunar er að unnt sé að bregðast við yfirvofandi bilunum og tryggja skjót viðbrögð við þeim. Með vöktun er settur upp búnaður í tölvurými viðskiptavinar og nauðsynlegur hugbúnaður á þau tæki sem vakta skal. Sérfræðingar eru síðan á vakt í innhringimiðstöð TAS allan sólarhringinn.
Samningur um vöktun er aðlagaður að þörfum viðskiptavinar hverju sinni, en hann getur innifalið eftirfarandi þjónustuþætti:
- Vöktun allan sólarhringinn alla daga ársins.
- Vöktun utan skrifstofutíma, um helgar og helgidaga.
- Sérfræðingar TAS annast viðgerð komi upp bilanir.
- Innhringimiðstöð TAS hringir út starfsmenn tölvudeildar.
- Eftirlitsferðir vaktmanna í tölvurými skv. fyrirfram ákveðnu fyrirkomulagi.
Fyrir vöktunarsamning er greitt fast mánaðargjald fyrir utan þá vinnu sem hlýst af vegna viðgerðar á búnaði sem framkvæmd er af sérfræðingum TAS.