Öflugur vinnustaður með fókusinn á fólkið
TAS Tækniþjónusta ehf. leitast við að vera eftirsóttur og góður vinnustaður. Félagið er þekkingarfyrirtæki og því eru starfsmenn helsta auðlind félagsins.
TAS Tækniþjónusta ehf. hefur á að skipa samhentum hópi kraftmikils og metnaðarfulls starfsfólks í skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem aðbúnaður er til fyrirmyndar. Það er viðhorf stjórnenda að lykillinn að vexti og viðgangi félagsins sé starfsfólkið og sá kraftur sem í því býr; þekking þess, reynsla, hugmyndir og frumkvæði.